logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Fjölskyldutímar í íþróttum og sundi

10/09/2015

Íþrótta og tómstundanefnd samþykkti á vordögum þá tillögu að bjóða uppá fjölskyldutíma í íþróttahúsinu að Varmá á laugardögum í vetur milli kl. 10:30 - 12:00.

Hugmyndin er að sameina fjölskylduna í hreyfingu einu sinni í viku yfir haust – og vetrarmánuðina með því að bjóða uppá tíma í íþróttahúsinu að Varmá þar sem fjölskyldan getur komið saman og leikið sér og stundað skemmtilega hreyfingu, og sameinað um leið samveru og hreyfingu á sama tíma.

Um fjörið sjá tveir vel reyndir leiðbeinendur þau Þorbjörg Sólbjartsdóttir og Árni Freyr Einarsson.

Fyrsti tíminn er laugardaginn 12. september í íþróttahúsinu að Varmá. Frítt í sund á eftir fyrir þá sem að vilja, hlökkum til að sjá sem flesta mæta.

Sjá auglýsingu

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira