logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Fréttir

Lokakeppni í Stóru upplestrarkeppninni 21.mars

22/03/24Lokakeppni í Stóru upplestrarkeppninni 21.mars
21. mars fór lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Mosfellsbæ fram í hátíðarsal Lágafellsskóla. Tólf nemendur í 7. bekk úr Lágafellsskóla, Kvíslar- og Helgafellsskóla lásu texta og ljóð eftir skáld keppninnar. Lágafellsskóli er ákaflega stoltur af þeim nemendum sem kepptu fyrir hönd skólans en það voru Egill Nói Líndal Hjartarson 7.SÁR, Eva Jónína Daníelsdóttir 7.BMB, Guðný Magnea Ísleifsdóttir 7.BMB og Guðrún Klara Daníelsdóttir 7.SÁR. Þjálfari liðsins síðustu vikurnar var Ýr Þórðardóttir íslenskukennari en fram að því sáu umsjónakennarar um þjálfun. Allir keppendur stóðu sig með miklum sóma. Fyrstu tvö sætin féllu í hlut Kvíslarskólar þar sem Rakel stóð uppi sem sigurvegari keppninnar og Þorsteinn Flóki hlaut önnur verðlaun. Í þriðja sæti var svo Eva Jónína Daníelsdóttir úr 7.BMB í Lágafellsskóla og óskum við henni sérstaklega til hamingju með árangurinn. Jafnframt hlaut Sofie Þórunn Þórðardóttir Araque viðurkenningu fyrir glæsilega myndskreytingu sem var á forsíðu dagskrá keppninnar og svo spiluðu tveir nemendur úr 7.bekk Lágafellsskóla sem jafnframt eru nemendur í Tónlistarskóla Mosfellsbæjar á gítar en það voru þeir Dagur Magnússon og Egill Orri Guðmundsson. Til hamingju öll og Lágafellsskóli er svo sannarlega stoltur af öllum þessum efnilegum ungmennum.
Meira ...

Fréttablað nemenda á elsta stigi

21/03/24
Einn hópur á þemadögum Hristings vann skólablað undir stjórn Maríu Leu kennara sem má finna inn á heimasíðu skólans. http://www.lagafellsskoli.is/library/Frettabref-nemenda/Fr%c3%a9ttabla%c3%b0%20fyrir%20Hristing.pdf
Meira ...

Páskabingó

07/03/24Páskabingó
Páskabingó Lágafellsskóla verður haldið 16.mars kl. 12:00-14:00 í sal skólans.
Meira ...

Undankeppni - Stóra upplestrarkeppnin 2024

01/03/24Undankeppni - Stóra upplestrarkeppnin 2024
Tólf glæsilegir fulltrúar í 7.bekk kepptu föstudaginn 1.mars um það hvaða fjórir nemendur yrðu fulltrúar skólans í Stóru upplestrarkeppninni sem fram fer fimmtudaginn 21.mars kl.16:30 í Lágafellsskóla, við nemendur úr Kvíslar- og Helgafellsskóla.
Meira ...

Vetrarfrí 19. - 20.feb.

15/02/24
Við viljum minna ykkur á að mánudaginn 19.feb. og þriðjudaginn 20. feb. er vetrarfrí í grunnskólum Mosfellsbæjar. Kennsla hefst aftur skv. stundaskrá miðvikudaginn 21.feb. Skrifstofa skólans er lokuð þessa daga og Frístund er einnig lokuð þar sem lágmarksskráning náðist ekki fyrir sér vetraropnun. Bendum á heimasíðu bæjarins þar sem hægt er að skoða þá viðburði sem ungmennum stendur til boða þessa daga https://mos.is/mannlif/vidburdir/vetrarfri-i-mosfellsbae Hafið það gott í fríinu og njótið samverunnar við hvert annað
Meira ...

Lágafellsskóli símalaus skóli

04/02/24
Frá 1.febrúar er Lágafellsskóli símalaus skóli.
Meira ...

Foreldraviðtöl í Lágafellsskóla 7.febrúar

04/02/24
Minnum á að foreldraviðtöl verða í Lágafellsskóla miðvikudaginn 7.febrúar. Foreldrar mæta með börnum sinum skv. fyrirkomulagi sem umsjónarkennarar hafa sent út. Öll kennsla fellur niður þann dag en frístund er opin frá 13:20 fyrir þá sem þar eru skráðir.
Meira ...

Gjaldskrárhækkanir frá 1/1 2024

19/12/23
Nýjar gjaldskrár taka við frá 1/1 2024 og er hækkanir um 7,5% Helstu breytingar eru að ávextabiti fer í 142 kr, hádegismatur 495 kr, panini 380 kr. Hver klst í frístund fer í 406 og hver auka vistunardagur í skólaleyfum fer í 3459 kr. https://mos.is/stjornsysla/fjarmal/gjaldskrar
Meira ...

Lágafellsskóli - símalaus skóli frá 4.janúar 2024

15/12/23
Framkvæmdin verður eftirfarandi; Frá og með 4. janúar 2024 verða allar kennslustundir símalausar (símar geymdir í skólatöskum/skápum). Vikuna 8 - 12. janúar verður fræðsla fyrir nemendur í 7. - 10. bekk um skaðsemi of mikillar farsímanotkunar. Fræðsla fyrir kennara sama efnis fer fram í vikunni 15.-19. janúar. Í vikunni 15.-19. janúar verður skólaþing með nemendum. Þar mun fara fram hugmyndavinna varðandi afþreyingu í frímínútum svo eitthvað sé nefnt. Vikuna 22. - 27. janúar fer bréf heim þar sem reglurnar eru tíundaðar, um framkvæmdina, hlutverk foreldra, nemenda og starfsmanna skólans sem og viðbrögð ef reglum er ekki hlítt. ​ Frá 1. febrúar 2024 verður Lágafellsskóli símalaus skóli og er þá bæði átt við snjallsíma og snjallúr.
Meira ...

Jólamatur nemenda 8.des. og pizza á jölaböllum 19. og 20.des

05/12/23Jólamatur nemenda 8.des. og pizza á jölaböllum 19. og 20.des
Jólamatur nemenda verður föstudaginn 8.desember. Í matinn er Jólaskinka, paprikukryddaðar kartöflur, grænar baunir, rauðkál og brún sósa. Ávaxtasafi/vatn og íspinni í eftirrétt. Þeir nemendur sem ekki eru í mötuneytisáskrift geta keypt þessa máltíð staka á 700 kr sem greidd er fyrirfram, sjá neðar. Þegar stofujólin/jólaböll eru hjá 1. – 7. bekk miðvikudaginn 20. desember er pizza í matinn og þeir nemendur sem ekki eru í mötuneytisáskrift geta keypt þessa máltíð staka á 700 kr. Sömuleiðis geta nemendur í 8.-10.bekk sem ekki eru skráðir í mötuneytisáskrift keypt þessa máltíð staka en þeirra stofujól/jólaball eru að kvöldi 19.desember. Í boði verður pizza með pepperoni, skinku, margarita og veganpizza. Þeir sem hyggjast kaupa sér staka máltíð greiða 700 krónur fyrir máltíðina hjá ritara, fyrir fimmtudaginn 7.desember, en einnig má leggja inn á reikning 549-26-2240 kt. 500904-2240 og passa þá að skrá bekk og nafn nemenda sem verið er að kaupa fyrir og senda staðfestingu á ritara sigrun.halldorsdottir@mosmennt.is Jólakveðja Starfsmenn Lágafellsskóla
Meira ...

Síða 1 af 30

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira